Comenius - yngsta stig

 

2. bekkur í Hamarsskóla tekur nú þátt í Comeníusarverkerfni með sex öðrum löndum, þau eru Tyrkland, Ungverjaland, Spánn, Frakkland, Danmörk og Finnland.  Yfirskrift verkefnisins er Umhverfisþing barnanna.  Börnin sem taka þátt í verkefninu eru á misjöfnum aldri en okkar börn eru lang yngst og því hafa þau ekki haft tækifæri til að hitta hina krakkana.  En fyrsti fundur verkefnisins var í Tyrklandi í haust.  Þar voru línurnar lagðar og ákveðið var að vinna með endurvinnslu fram að næsta fundi sem er í Kaupmannahöfn í lok apríl. 

 

Við hér í Eyjum höfum ekki látið okkar eftir liggja í þeirri vinnu og í síðustu viku voru settar upp stöðvar þar sem við föndruðum, fræddumst um umhverfisvernd og endurunnum pappír.

 

Hér fylgja myndir frá þessari skemmtilegu vinnu.

 

Helga Björk