|
Forsíða Fréttir Um skólann
Nemendur
Starfsfólk
Myndir Tenglar
Verkefni Foreldrar
Comenius
Skóladagatal
Skóladagatal´05-06
-- |
 |
Þemadagar
hjá unglingum
Söngur og
þemadagar hjá unglingum
| Söngur á sal var miðvikudaginn
14. feb. Krakkarnir sungu ásamt Jarli og öðrum
kennurum þjóðhátíðarsöngva enda eru þemadagar á
næsta leiti með Þjóðhátíð í fyrirrúmi. Á
morgun fimmtudag byrja svo þemadagar.
Krakkarnir eru búnir að velja sér hópa sem verða svo
starfræktir næstu 4 virka daga. Þetta eru
hópar eins og kvikmyndahópur, tónlistarhópur,
fjölmiðlahópur, skreytingahópur, matarhópur og
hefðir og venjur. Allt unglingastarf skólans
verður undirlagt þessa daga sem endar síðan með
stórkostlegri árshátíð þriðjudaginn 20. feb.
Myndin hér til
hliðar er tekin á söngstund. |
 |
Niðurstöður samræmdra prófa í Grunnskóla
Vestmannaeyja bárust um miðjan desember.
|
4.
bekkur:
Meðaleinkunn
skólans í stærðfræði 6.9
Suðurland
6.4
Landsmeðaltal
6.7
Meðaleinkunn skólans í íslensku 6.3
Suðurland
6.4
Landsmeðaltal
6.7
7. bekk eru nemendur í
góðri framför frá 4. bekk.
63 nemendur tóku próf í
íslensku í 7. bekk. Af þeim eru 43 nemendur sem
sýna framför í meðallagi frá 4. bekk en 9 sýna
umtalsverða eða meiri framför en almennt gerist hjá
jafnöldrum. |
7.
bekkur:
Meðaleinkunn
skólans í stærðfræði 7.7
Suðurland
7.0
Landsmeðaltal
7.3
Meðaleinkunn skólans í íslensku 7.2
Suðurland
6.7
Landsmeðaltal
7.0
68 nemendur tóku próf í
stærðfræði í 7. bekk. Af þeim eru 44 nemendur sem
sýna framför í meðallagi frá 4. bekk en 16 nemendur
sýna meiri framför eða umtalsverða en almennt gerist
hjá jafnöldrum. |
Til
hamingju með þetta nemendur, foreldrar og kennarar
!
Söngstund hjá yngsta og
miðstigi
|
Fyrsta söngstund ársins var í dag föstudaginn 9.
febrúar og heppnaðist hún glimrandi vel. Í þetta
sinn voru sungin lög sem eru tileinkuð þorranum eins
og t.d. Þorraþræll, Nú er úti norðanvindur. Hér má
sjá nemendur í 5. bekk skemmta sér konunglega en þau
tóku mikinn þátt í söngnum eins og sést hér til
hliðar.
Fleiri
myndir má sjá hér af 5. bekk.
|
 |
Fjör í sleðaferð hjá 1.
bekk
Fjör í snjónum !
Krakkarnir hafa verið mjög glöð með allan
snjóinn og góða veðrið undanfarið. Þau hafa
verið mjög dugleg að leika sér í honum.
Föstudaginn 19. janúar fór 1. Þ.G. í sleðaferð ásamt
Þóru og Ólu Heiðu niður á Þórsvöll. Skemmtu
þau sér konunglega á þotum, stýrissleðum og
plastpokum.
Fleiri myndir eru hér frá þessari skemmtilegu ferð.
|
 |
Fjöltefli í Hamarsskóla
Föstudaginn 19.
janúar tefldi Helgi Ólafsson stórmeistari fjöltefli
við nemendur Grunnskóla Vestmannaeyja.
Fjölteflið byrjaði í Hamarsskóla kl. 08:00 og stóð
til kl. 10:00 þá hafði Helgi teflt við um 50
nemendur bæði stelpur og stráka. Helgi vann allar
skákirnar en nemendur stóðu sig frábærlega.
Var þetta skemmtileg tilbreyting í skólastarfið.
Hér sjást nemendur og Helgi Ólafsson djúpt
hugsi.
Smelltu hér til að
sjá fleiri myndir frá mótinu.
|
 |
Annarlok og próf í janúar
| Nú er skólinn hafinn að nýju
eftir gott jólafrí. Miðvikudaginn 17. janúar
er starfsdagur hjá kennurum og eiga nemendur frí
þann dag. Nemendur mæta annars í skólann
samkvæmt stundaskrá. Mánudaginn 22. janúar
hefst ný önn en þá verða foreldraviðtöl og afhending
einkunna. Þá mæta nemendur með sínum foreldrum
á fund skv. samráði við kennara. Annarpróf
verða í þessari viku og næstu og fá nemendur blað
með sér heim frá sínum kennara með nánari útlistun.
Prófadagar á unglingastigi
Enska 11.
janúar
Danska 12. janúar
Íslenska 15. janúar
Stærðfræði 16. janúar
Aðrir kennarar setja sín próf inn í töflu
Kennt verður frá klukkan 8.00 og þar til prófatími
hefst. Einnig verður kennt eftir hádegi.
|
|
Óvænt heimsókn
Gunnar Karl í 7.SF
fékk óvænta heimsókn í morgun þegar Jónsi í
hljómsveitinni Í svörtum fötum kom ásamt
myndatökumanni frá Stöð 2. Gunnar Karl vissi ekkert
um heimsóknina og varð að vonum mjög hissa og
glaður. Jónsi kom eingöngu til að eyða deginum
með Gunnari Karli og fengum við hin ekkert að vita
meira um þeirra áform. Frábært framtak og vonum við
að dagurinn þeirra verði eftirminnilegur.
Á myndinni hér til hliðar sést Gunnar Karl ásamt Jónsa og
Svanhvíti kennara.
|
 |
Jólasundmót Grunnskólans í
Vestmannaeyjum
|
Í dag var hið árlega jólasundmót Grunnskóla
Vestmannaeyja og er það í 30. skiptið sem það er
haldið. Af þessu tilefni voru keyptir nýir bikarar
sem keppt var um í dag.
Eins og venjulega var byrjað á kertasundi allir
keppendur syntu með kerti og á meðan var Heims um
ból spilað. Eftir það fór fram keppni á milli
nemenda í 5. og 6. bekk í skrið- og bringusundi í
lokin fór fram keppni í boðsundi milli bekkja og
milli starfsfólks Barna- og Hamarsskóla.
Sigurvegarar í boðsundinu voru 5. Þ.S. og 6. I.Þ
og eru þeir báðir úr Barnaskólanum en lið
starfsfólks í Hamarsskóla vann boðsunds starfsfólks.
Þetta er skemmtilegur siður þar sem starfsfólk og
nemendur höfðu gaman saman.
Hér eru
fleiri skemmtilegar myndir
|
 |
Jólaföndurdagur Hamarsskóla
1. des. ball hjá unglingum
| Fimmtudaginn 7. des.
var haldið 1. des. ball hjá 8.-10. bekkjum
Grunnskólans í Vestmannaeyjum. Tókst ballið
með eindæmum vel og voru unglingarnir til mikillar
fyrirmyndar á ballinu. Við getum verið stolt
af börnunum okkar. Hamarskóla krakkarnir unnu
spurningakeppnina eftir drengilega keppni við
Barnaskóla nemendur. Verðlaunaafhending var
fyrir stuttmyndasamkeppnina og voru dómarar ekki
öfundsverðir því myndirnar voru hreint út sagt
frábærar og nemendum sem tóku þátt til mikils sóma.
Síðan voru flott tónlistaratriði og greinilegt að
Vestmannaeyjar verða ekki á flæðiskeri hvað varðar
listamenn í framtíðinni. Að lokum var dansað
dátt til enda ballsins. |
 |
7. bekkur í heimsókn til
Vinnslustöðvarinnar
| Árleg heimsókn var
hjá 7. bekk á dögunum í Vinnslustöðina. Þar
fóru nemendur í útsýnistúr um stöðina og fengu góðar
lýsingar á starfseminni þar að lokum var svo öllum
boðið í mikla pizzuveislu. Þökkum við fyrir
góðar viðtökur að vanda. |
 |
Söngstund á sal 1. des.
| Föstudaginn 1. des. var söngur á
sal. Jarl tónmenntakennari leiddi fjöldasöng
og var sungið af hjartans lyst. Frábær
stemning var bæði hjá krökkunum og kennurum.
Voru tekin nokkur Eyjalög ásamt laginu Traustur
vinur en var það lag valið sérstaklega vegna
vinaviku Hamarsskóla.
Smellið hér
til að sjá fleiri myndir. |
 |
| Á föstudaginn var haldinn samvera
á sal hjá öllum nemendum skólans. Jarl mætti
með gítarinn og tók nokkur lög með krökkunum sem þau
höfðu verið að æfa sig í að syngja. Tókst
þetta frábærlega vel, nemendur og kennarar voru vel
með á nótunum og tóku virkan þátt í söngnum.
Á myndinni má sjá krakkana í
unglingadeild ásamt kennurum sem sungu svo
kröftuglega að undir tók í skólabyggingunni.
Smelltu hér
til að sjá myndir frá yngsta- og miðstigi en ekki
var minni áhugi þar. |
 |
| Grænn skóli: Þar sem
Grunnskólinn í Vestmannaeyjum stefnir á að verða
Grænn skóli var ákveðið að þiggja mjólkurvél frá
Mjólkursamsölunni. Í stað þess að vera með
mjólkurfernur verður mjólkin látin í könnur og hellt
í glös inni í kennslustofum. Kemur mjólkin ísköld og
ljúffeng úr könnunni. Við þetta sparast heilmikill
pappi og spor í rétta átt fyrir Grænan skóla.
Á myndinni hér til hliðar má sjá
mjólkurvélina góðu ásamt Fanneyju skólastjóra og
kennurum með ískalda mjólk í bollum.
Einnig hefur verið tekin upp sú
nýlenda að bjóða nemendum (gegna vægu gjaldi) upp á
ávexti seinni part morguns. Hefur þetta gefist
mjög vel að mati kennara. Gunna Birna í
eldhúsinu ásamt skólaliðum sjá svo um að útbúa
ávextina á girnilegan hátt fyrir nemendur. |

 |
Krakkarnir í 4. DA og
4. JA hafa verið að læra um slysavarnir og
skyndihjálp í vetur. Í dag fimmtudag 28.
september fengu þau góða heimsók en Vera Björk
hjúkrunarfræðingur kom og sýndi þeim hvernig á að
nota plástur og
sáraumbúðir og ræddi mikilvægi þess að gæta
hreinlætis við meðfreð sára.
Hér má sjá áhugasama nemendur fylgjast með Veru
Björk |
 |
Miðvikudaginn
27. september fór 3. bekkur í
örnefnagöngu . Þessi ferð var farin í sambandi við
fjallaþema sem krakkarnir eru búnir að vera að vinna
í núna í haust. Veðrið var alveg frábært og nemendur
mjög ánægðir með ferðina.
Takk fyrir
|
 |
|
Krakkarnir í 5. bekk héldu videófund
í dag með Comeníusarkrökkunum í Englandi. Þau sýndu
ensku krökkunum pysjur og steina frá gosinu og sögðu
aðeins frá. Ensku krakkarnir voru mjög
áhugasöm enda ekki á hverjum degi sem þau sjá pysjur
og hraun.
|
 |
Grill
og tiltektardagur Hamarsskóla 24. maí.

Hér eru myndir frá deginum.
Myndir frá Skóladeginum.
|
Comeníusar heimsókn
|
Undanfarna daga höfum við haft góða heimsókn hér í
Hamarsskóla. Kennarar frá fjórum löndum, Englandi,
Portúgal, Noregi og Frakklandi hafa verið hér að
skoða aðstæður og læra um okkur, hitta nemendur og
kennara. Þau voru mjög ánægð með heimsóknina og
fannst eyjan okkar alveg sérstaklega falleg og
fólkið hlýlegt. Nú eru þau farin heim og þar bíða
spenntir krakkar að heyra frá kennurunum sínum og fá
alla ferðasöguna. Við þökkum þeim kærlega fyrir
komuna.
|
 |
Upplestrarkeppni
Grunnskólanna
| Þriðjudaginn 28. mars
var haldin upplestrarkeppni 7. bekkjar á milli
Hamarsskóla og Barnaskólans. Bjartur Týr
Ólafsson, Barnaskólanum vann og óskum við honum
hjartanlega til hamingju. Í öðru sæti var okkar
eigin Guðný Bernódusdóttir, Kristjana
Sigurðarsdóttir, Barnaskólanum í þriðja sæti og
aukaverðlaun hlaut Kateryna Hlynsdóttir,
Hamarsskóla. Var þetta frábær keppni hjá
krökkunum og framtíðar ræðuskörungar þar á ferð. Á
myndinni hér til hliðar má sjá Kateryne og Guðnýju.
Til hamingju stelpur, þið eruð flottir fulltrúar
Hamarsskóla. |
 |
Árshátíð unglinga
| Árshátíðin tókst
alveg frábærlega vel. Krakkarnir voru alveg
til fyrirmyndar. Skemmtiatriðin voru mjög góð og
eigum við fullt af hæfileikaríkum krökkum sem við
getum svo sannarlega verið stolt af.
Teknar voru nokkrar myndir sem má sjá
hér. |
 |
Öskudagur
| Á Öskudaginn verður
frí hjá nemendum í skólanum en þá er starfsdagur
kennara. Krakkarnir í yngstu deildum hafa
verið að taka forskot á sæluna og koma í furðufötum
í skólann. Hafa verið hér á göngum
beinagrindum, prinsessur og alls konar ofurhetjur.
Hér á myndunum við hliðina má sjá 1.ALS og 3.DA í
flottu búningunum sínum. Vonandi eiga allir
ánægjulegan dag á Öskudag. Sjáumst svo hress á
fimmtudaginn 2. mars.
Kær kveðja
Starfsfólk Hamarsskóla |

 |
Stríðsárin í Vestmannaeyjum
| Nú standa yfir
þemadagar á unglingastigi. Þemað er Stríðsárin og
áhersla á stríðsárin í Eyjum. Búið er að
skipta krökkunum upp í hópa þar sem þau eru m.a. að
breyta unglingaaðstöðunni skv. hernáms tímabilinu,
þau búa til mat frá þessu tímabili, þau taka viðtöl
við fólk sem var uppi á þessum tíma, búa til leikrit
og svo erum við að búa til 2 hljómsveitir sem spila
lög frá þessum tíma svo eitthvað sé nefnt.
Rosalega skemmtilegir dagar. Smelltu
hér til að sjá myndir. |
 |
Útvarpshópur
| Útvarpshópurinn fór á Stórhöfða
og tók mjög skemmtilegt viðtal við Óskar Sigurðsson
vitavörð. Sagði hann krökkunum m.a. frá
hermönnum sem bjuggu á Stórhöfða í seinni
heimstyrjöldinni. Hér á myndinni til hliðar má
sjá nemendur ásamt Óskari og Jóni Halli en hann sér
um útvarpshópinn ásamt konu sinni Rikke. |
 |
Tilbreytingadagur hjá
yngsta stigi
|
Fimmtudaginn 23.
febrúar var haldinn tilbreytingadagur hjá yngsta
stigi. Krökkunum var skipt upp í hópa og bjuggu þau
m.a. til bolluvendi. Var þetta hinn skemmtilegasti
dagur þar sem nemendur jafnt sem kennarar áttu
notalegan dag saman. Sjá myndir
hér.
|
 |
Leikhús - Egill
Skallagrímsson
| Á dögunum fór miðstig Hamarsskóla
í leikhús í Barnaskólann þar sem horft var á leikrit
um Egil Skallagrímsson. Fannst krökkunum þetta
mjög skemmtilegt og lifðu sig vel inn í leikritið.
Frábært framtak og vonandi verður meira af svona í
boði. |
.jpg) |
Bingó
Föstudaginn 3. febrúar kl.
17:00-19:00 verður bingó og diskó í unglingaaðstöðunni í
Hamarsskóla fyrir 1-3 bekk. Aðgangseyrir er kr. 200 og
er 1 bingóspjald innifalið. Eftir bingó verður farið í
leiki. Sjoppa á staðnum.
Allir að mæta,
10. bekkur
Foreldrafundum lokið
Foreldrar voru
duglegir að mæta á foreldrafundi í Hamarsskóla
mánudaginn 23. janúar. Starfsfólk skólans metur
mikils þátttöku foreldra í skólastarfinu og þakkar
jákvæðar og góðar ábendingar. Samvinna heimilis og
skóla er einn af mikilvægustu hornsteinum
skólastarfsins sem aldrei er ofmetinn. Kærar þakkir
foreldrar fyrir ykkar framlag.
Starfsfólk Hamarsskóla.
|
 |
Jólaföndurdagur Hamarsskóla

Undanfarin ár hafa nemendur í Hamarsskóla
föndrað saman einn dag á aðventunni og í ár ætlum við að
gera þetta fimmtudaginn 15. desember frá kl. 8 – 12:15.
Kennsla verður samkvæmt stundarskrá eftir hádegi. Gott væri
ef nemendur kæmu í skólann þennan dag vel búin föndurdóti s.
s. skærum, lími, renningum, skrautpennum, límmiðum o.fl. sem
gæti hentað. Athugið að þeir nemendur sem völdu eftirtaldar
stöðvar þurfa að hafa með sér eftirtalda hluti:
Stöð 3 – þræðistöð , pallíettur og tölur.
Stöð 5 – jólasveinar, klemmur og eða kanilstangir.
Stöð 9 – kertaskreytingar, kerti og ýmislegt skraut.
Stöð 11 – mála piparkökur, 4 – 6 (eða fl.) piparkökur (nem.
fá líka í skólanum).
Stöð 12 – endurunnið jólaskraut, jólakúlur (nýjar/gamlar),
íspinnaspýtur, afgangs jólapappír, gömul jólakort og ónýtar
ljósaperur.
Til að fá nánari upplýsingar um hvert föndur fyrir sig
smellið hér
Sjáumst hress og kát á föndurdegi í
Hamarsskóla.
Starfsfólk
Hádegisfundur hjá 6.JA
|
Föstudaginn 2 desember var foreldrum
í 6. JA boðið til hádegisverðarkynningu á sal
skólans.
Nemendur héldu kynningu á verkefnum sem þau höfðu
verið að vinna í samfélagsfræði og stóðu sig mjög
vel. Verkefnin voru annars vegar um Snorra
Sturluson og hins vegar um miðaldir.
Í lokin buðu nemendur upp á safa og smákökur sem var
kærkomið í jólaamstrinu.
Þökkum fyrir góða mætingu.
Jóhanna og 6. JA
|
 |
Samræmd próf í 4. og 7. bekk.
Niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk hafa borist
skólanum og verið sendar heim með nemendum. Í 4. bekk var
meðaleinkunn skólans í stærðfræði 6.4, á Suðurlandi var
meðaltalið 6.5 og 6.8 yfir landið . Í íslensku var
meðaleinkunn skólans 6.6 , á Suðurlandi 6.5 og 6.9 yfir
landið. Í stærðfræði var hæsta einkunn í skólanum 9.5
og í íslensku var hæsta einkunnin 8.5 Í 7. bekk var
meðaleinkunn skólans í stærðfræði 6.1, á Suðurlandi 6.5 og á
landinu 6.9. Í íslensku var meðaleinkunn skólans 7.0, á
Suðurlandi 7.0 og á landinu 7.3. Í stærðfræði var hæsta
einkunn í skólanum 10 og í íslensku var hæsta einkunn 8.5.
Í 7. bekk eru nemendur góðri í framför frá 4. bekk. Í
stærðfræði sýna 9nemendur umtalsverðar eða meiri framfarir
en almennt gerist hjá jafnöldrum, 2 minna en almennt gerist
og 22 í meðallagi. Í íslensku sýna 6 nemendur umtalsverðar
eða meiri framfarir en almennt gerist, 2 minna en almennt
gerist og 26 í meðallagi.
Til hamingju nemendur, kennarar og foreldrar. HM
| Eldvarnarvika 3.
bekkur Við í 3. bekk fórum í heimsókn á
Slökkvistöðina 1. des. og fengum frábærar móttöku.
Eldvarnarvika var í síðustu viku og er nemendum í 3.
bekk boðið í heimsókn. Þau eru síðan gerð að
brunarvörðum heimilanna. Þau fengu gjafir, s.s.
geisladisk í tölvu, viðurkenningarskjal og svo taka
þau þátt í getraun og þegar þau skila þá fá þau
yddara og slökkviðliðsmerki. Toppurinn á tilverunni
var svo að fá far
með slökkviliðsbílunum upp í skóla. Allir brostu út
að eyrum
Takk takk Adda og Drífa Þöll.
Smellið hér
til að sjá fleiri myndir
|
 |
|
|
Hádegisfundur hjá 6.ÍR
| Föstudaginn 25. nóv.
var foreldrum 6. ÍR boðið til hádegisverðarfundar. Þar var boðið upp á súpu og brauð við góðar
undirtektir foreldra. Nemendur héldu kynningu á
verkefnum sem þau höfðu verið að vinna í samfélagsfræði og
stóðu nemendur sig frábærlega vel að venju. Á myndinni
hér til hliðar má sjá hluta hópsins ásamt Írisi kennara. |
 |
Heimsókn frá rithöfundi
| Föstudaginn 10. nóv.
fengum við góða heimsókn í Hamarsskóla en þá kom
rithöfundurinn Vilborg Dagbjartsdóttir í heimsókn og las úr
einni af bókum sínum fyrir yngstu nemendurna. Var mjög
gaman að hlusta á hana og kunnum við henni bestu þakkir
fyrir. Hér sjáum við rithöfundinn ásamt Sigurlási
Þorleifssyni, aðstoðarskólastjóra. |
 |
7. bekkur í heimsókn hjá
listamanninum Gauja í Gíslholti
| Nú stendur yfir sýning hjá
listamanninum Guðjóni Ólafssyni. Hafa nemendur
Hamarsskóla verið dugleg að fara á sýninguna og haft mikla
ánægju af. Við þökkum Guðjóni fyrir að vilja fá okkur
í heimsókn og fyrir frábæra sýningu. Hér til hliðar
eru myndir af listamanninum að tala við nemendur úr 7. bekk. |
 |
| |
|
1. bekkur fékk plakat frá
Leikfélagi Vestmannaeyja
Eins og flestum er kunnugt
sýnir Leikfélag Vestmannaeyja (LV) barnaleikritið
Skilaboðaskjóðuna um þessar mundir. Krakkarnir í 2.
bekk hafa verið að vinna með söguna og gáfu leikfélaginu
myndir og sögur sem þau gerðu í sögurammaverkefni þegar þau
voru í 1. bekk. Á myndunum má sjá krakkana ásamt Drífu
Þöll kennara og starfsmann LV taka við gjöfum ásamt því sem
LV færði krökkunum plaggat í þakklætisskyni. |
 |
Hitaveita Suðurnesja í heimsókn
|
Mánudaginn 24. október komu
Ellert Eiríksson og Harpa Sævarsdóttir frá Hitaveitu
Suðurnesja í heimsókn í Hamarsskóla. Komu þau færandi
hendi en þau gáfu öllum krökkum í skólanum vekjaraklukku.
Nú kemur enginn lengur of seint. Við þökkum kærlega
fyrir okkur enda frábært framtak þegar fyrirtæki láta gott
af sér leiða við börnin. Hér til hliðar má sjá Hörpu
og Ellert ásamt Halldóru skólastjóra en Ellert og Harpa
útskýrðu stuttlega starfsemi Hitaveitunnar ásamt því hvernig
vekjaraklukkan virkar.
|
 |
Bekkjarferð 7. bekkjar
| Þriðjudaginn 4. október var
7. bekk Hamarsskóla boðið í árlega heimsókn til
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hafa þeir boðið
7. bekk undandarin ár og var nú engin undantekning.
Sigurgeir Brynjar, framkvæmdastjóri tók á móti hópnum.
Hann sagði frá sögu Vinnslustöðvarinnar og starfsemi.
Var síðan boðið upp á pizzu og gos. Var þetta hin
skemmtilegast ferð í alla staði og þökkum við
Vinnslustöðinni og Sigurgeiri Brynjari kærlega fyrir þetta
frábæra boð. Skólastjórinn fékk svo bréf frá
Ingibjörgu Finnbogadóttur starfsmanni Vinnslustöðvarinnar
þar sem hún hældi krökkunum fyrir kurteisi og erum við að
sjálfsögðu mjög ánægð með það. |
 |
Barnaóperan Undir drekavæng
|
5. okt. fóru nemendur í 1-3
bekk á óperusýningu í sal Barnaskólans. Allir höfðu gaman af
þessari tilbreytingu. Nemendur tóku þátt í sýningunni og
báru fuglagrímur sem þeir voru búnir að útbúa. Höfðu þau
útbúið hrafna, heiðlóur, æðafugla og lunda. Smelltu
hér til að sjá myndir.
|
 |

 |
%20of%20Picture%20007.jpg)
Nú er vinavikan búin en við
ætlum samt að halda áfram að vera vinir. Smelltu
hér til að sjá myndir frá
vinavikunni! |
Vinavika Hamarsskóla verður vikuna 19.-23. sept.
Þá er aftur komið að okkar árlegu
vinaviku. Nemendur vinna verkefni sem stuðla að aukinni
samkennd og vináttu. Í ár ætlum við að búa til vinakeðju úr
pappírsfígúrum sem verða hengdar upp og úr þeim myndað listaverkið
"Vinabönd - hönd í hönd". Þá verður sameiginleg
tilbreyting alla dagana eftirfarandi:
|
|
Mánudagur: Boladagur
Þriðjudagur: Höfuðfatadagur
Miðvikudagur: Sportdagur
Fimmtudagur: Svuntu- og/eða sokkadagur
Föstudagur: Tuskudýradagur |
Velkomin á skólaárið 2005-2006
Það voru spenntir nemendur og kennarar sem
hittust á skólasetningunni í morgun. Það er alltaf gaman að
byrja og er það von okkar skólastjórnenda að veturinn verði
ánægjulegur fyrir nemendur sem og starfsfólk skólans.
|

Við skólasetningu
unglingastigs |

|
Ef nemendur hafa ekki þegar verið innritaðir í skólann, þá
vinsamlega
innritið þá fyrir skólasetningardaginn. Foreldrar athugið að vegna
breytinga
á matarfyrirkomulagi í skólanum geta nemendur ekki keypt mat fyrst
skólavikuna. Skólastjóri
|
10. bekkur útskrifaðist 6.
júní. Haldin var útskriftarveisla í Hamarsskóla þar
sem veittar voru viðurkenningar fyrir frábæran námsárangur í
ýmsum greinum. Foreldrafélagið veitti verðlaun fyrir
bestu meðaleinkunn við lok grunnskóla og hlaut þau verðlaun
Tanja Tómasdóttir jafnframt því sem Tanja fékk hæstu einkunn
á samræmdum prófum í stærðfræði eða 9.5. Sparisjóður
Vm veitti verðlaun fyrir bestan árangur í íslensku og hlaut
þau verðlaun Bjarni Benedikt Kristjánsson. Danska
sendiráðið veitti viðurkenningu fyrir bestan árangur í
dönsku og hlaut þau verðlaun Hinrik Ottó Sigurjónsson.
Þá fékk Rakel Ósk Guðmundsdóttir viðurkenningu fyrir
frábæran árangur í textílmennt.
|
 |
| Smelltu
hér til að sjá Ólympíuleikadagana okkar! |
|
Á skóladegi Hamarsskóla 28.
maí voru teknar skóflustungur af nýjum
gervigrasvelli við Hamarsskóla. Skóflustungurnar tóku Sara
Rós Einarsdóttir og Ólafur Vignir Magnússon nemendur í 6.SF.
Við þetta tækifæri spiluðu félagar úr Litlu Lúðrasveitinni á
trompeta undir styrkri stjórn Hjálmars Guðnasonar. Guðmundur
ÞB Ólafsson gerði grein fyrir verkinu, Ólafur Elísson
afhenti gjafabréf frá Sparisjóði Vestmannaeyja og Halldóra
Magnúsdóttir skólastjóri þakkaði fyrir hönd skólans. Áætlað
er að völlurinn verði tilbúinn í haust, en hann er kostaður
af KSÍ, Vestmannaeyjabæ og Sparisjóði Vestmannaeyja og er
liður í því að auka knattspyrnuiðkun ungs fólks í
Vestmannaeyjum. |
 |
Grilldagur Hamarsskóla
Grilldagur Hamarsskóla var í dag 27. maí.
Smelltu hér til að sjá myndir.
Starfsfræðsludagar 8. og 9. bekkjar
Smelltu
hér
til að sjá myndir
Skólaferðalag 10. bekkjar

Sýnt verður frá ferðinni á skóladeginum sem hefst á
morgun kl. 13:00 í Íþróttahúsinu með danssýningu. Skólinn opnar kl.
14:00.
Heimsókn 7. bekkja í Vinnslustöðina
18. maí sl. var 7. bekk boðið í heimsókn í
Vinnslustöðina hf. í Vestmannaeyjum. Er þetta 3ja árið sem
Vinnslustöðin býður 7. bekk úr Hamarsskóla. Hafa þessar
heimsóknir gengið mjög vel og nemendur verið kennurum og Hamarsskóla
til sóma. Hér að ofan sjáum við framkvæmdastjórann Sigurgeir
Brynjar segja nemendum frá starfsemi Vinnslustöðvarinnar. Á eftir
var svo boðið upp á pizzu og gos við mikla hrifningu nemenda að
sjálfsögðu. Við þökkum Vinnslustöðinni fyrir þetta skemmtilega
framtak.
Skólaferðalag10. bekkjar
23. – 25. maí.
Mæting
í Herjólf 7:45, mánudag 23. maí. Þeir sem verða í bænum hitta
hópinn um kl. 12:00 á Essó-bensínstöð upp á Höfða. Þegar allur
hópurinn hefur skilað sér verður lagt af stað til Varmahlíðar í
Skagafirði. Þangað ættu menn að koma um kl. 16:00 með stoppi í
Borgarnesi. Haldið verður til í Varmahlíð fram til miðvikudagsins
25. maí. Komið verður heim með seinni ferð Herjólfs um kl. 22.30.
Tekist hefur að fjármagna ferðina að mestu en þó þarf hver nemandi
að borga 1000 kr. ( greiðist fyrir brottför ). Einnig borgar hver
nemandi fyrir sig í Herjólf ( einingar ).
Það
sem þarf að taka með sér: Hlífðarfatnaður, íþróttafatnaður,
hanskar/vettlingar, góður skófatnaður, svefnpoki/sæng-rúmföt, handklæði,
sundföt og aðra nauðsýnlega hluti.
Hægt
er að hafa með sér smá nesti ( ekki nauðsýnlegt, fæði er innifalið
og einnig er verslun mjög nálægt Farastjórar:
Ólafur Lárusson, Guðný Kristjánsdóttir
Skólaferðalag
hjá 5. ÍR og 5. JA
Mánudaginn 9. maí lögðum við land undir fót og fórum
í höfuðborgina. Ferðin
var farin til að heimsækja Þjóðminjasafnið og Rafheima, minjasafn
Orkuveitu
Reykjavíkur. Ferðin var í allastaði vel heppnuð og allstaðar
tekið vel á
móti okkur. Nemendur voru sjálfum sér og Hamarsskóla til sóma
og eiga
skilið hrós fyrir. Á Skóladaginn 28. maí verður myndasýning
frá ferðinni í
stofu 4.
Sóli , Rauðagerði og Kirkjugerði í heimsókn í 1. bekk
|
Nemendur í
skólahópum leikskólanna komu í heimsókn til okkar í dag, 28.
apríl. Nemendur í 1. bekk tóku á móti þeim og var mikið fjör
og mikið gaman. Greinilegt að leikskólahópurinn er
tilbúinn til að mæta í skólann í haust og hlökkum við til að
fá þau til starfa. Sjá fleiri myndir
hér
|
 |
Tilkynning frá
Menntamálaráðuneytinu: Vegna þeirrar röskunar sem orðið
hefur á skólahaldi í grunnskólum haustið 2004 hefur
menntamálaráðuneytið ákveðið breyttar dagsetningar vegna samræmdra
lokaprófa í 10. bekk grunnskóla 2005. Vinsamlegast athugið að
röð prófanna hefur einnið að nokkru leyti verið breytt frá því sem
áður var tilkynnt.
Prófgreinar og prófdagar í 10.
bekk grunnskóla vorið 2005 verða sem hér segir:
| Íslenska |
mánudagur |
9. maí |
kl. 9:00-12:00 |
| Enska |
þriðjudagur |
10. maí |
kl. 9:00-12:00 |
| Stærðfræði |
fimmtudagur |
12. maí |
kl. 9:00-12:00 |
| Danska |
föstudagur |
13. maí |
kl. 9:00-12:00 |
| Samfélagsfræði |
þriðjudagur |
17. maí |
kl. 9:00-12:00 |
| Náttúrufræði |
miðvikudagur |
18. maí |
kl. 9:00-12:00 |
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við
Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna.
Comenius:
Miðvikudaginn 20. apríl héldu Halldóra og
Sæfinna áleiðis til Azoreyja á Comeníusarfund. Hamarsskóli
ásamt skólum í Noregi, Frakklandi, Englandi og Portúgal eru hluti af
Comeníusar samstarfi. Krakkarnir í 3ja bekk Hamarsskóla eru
þátttakendur og er þetta fyrsti veturinn af þremur. Hefur
þetta tekist mjög vel og virkilega áhugavert bæði fyrir kennara og
nemendur. Við óskum þeim góðrar ferðar.
Bekkjarferð: 7.
bekkur Hamarsskóla lagði af stað í 5 daga bekkjarferð í morgun. Er
ferðinni heitið norður að Reykjum í Hrútafirði. Þar vinna þau
fjölbreytileg verkefni þar sem lögð er áhersla á samvinnu og
samstarf nemenda og kennara. Þau fara m.a. í fjöruferðir,
heimsókn á byggðasafn, kynnast landbúnaði, stunda íþróttir og
útiveru. Óskum við þeim góðrar ferðar og hlökkum til að sjá
myndir úr ferðinni sem verða settar hér á síðuna okkar í næstu viku.
Hamarsskóli vann fjórfalt

Upplestrarkeppni grunnskólanna fór fram í gær 11.
apríl. Hamarsskólakrakkarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu
fyrstu fjögur sætin. Í fyrsta sæti, Kristinn Pálsson, í öðru
sæti Sædís Birta Barkardóttir, í þriðja sæti Brynjar Þrastardóttir
og fjórða sæti Birgitta Ósk Valdimarsdóttir. Hér sjást
þau fyrir ofan ásamt kennurum sínum Guðrúnu og Þóru. Skólastjóranum
Halldóru Magnúsdóttur og íslenskufræðingnum Baldri Sigurðssyni.
Stóðu krakkarnir sig frábærlega vel og erum við að sjálfsögðu mjög
stolt af þeim. Til að heyra þau lesa er hægt að smella á myndirnar
af hverju og einu hér fyrir neðan.
|

Kristinn |

Sædís |

Brynja |

Birgitta |
Tónlist fyrir alla

Þann 11. apríl var Syngjandi skóli-Tónlist fyrir alla í
Hamarsskóla. Magnús Kjartansson ásamt Jóni Rafnssyni og
Jóhanni Hjörleifssyni spiluðu og sungu fyrir og með nemendum.
Tilgangur verkefnisins er að auka sönggleði hjá börnum og stuðla um
leið að því að nemendur á grunnskólaaldri læri fleiri íslensk lög og
ljóð. Nemendur sungu í aldursblönduðum hópum, yngri sungu 3
lög fyrir eldri og eldri sungu 4 lög fyrir yngri.
Upplestrarkeppni Hamarsskóla

Í keppninni munu nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr hvorum
skóla, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd
velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Skáld
keppninnar að þessu sinni eru Guðrún Helgadóttir og Jóhannes úr
Kötlum.
| Fimmtudaginn 31. mars var haldin
upplestrarkeppni í Hamarsskóla hjá 7. bekk. Er skemmst
frá því að segja þeir krakkar sem tóku þátt stóðu sig öll
mjög vel og erfitt að velja milli þeirra. En 6 voru
valin að þessu sinni og munu þau keppa við Barnaskólann
síðar í þessum mánuði.
Fulltrúar Hamarsskóla í upplestrarkeppninni árið 2005. |
 |
Viðhorfskannanir
Allt er þá að þrennt
er,fernt þá er full reynt!
Á foreldrafundardeginum fengum við góða svörun frá foreldrum nemenda
í 4.,7. og 10. bekk. Nemendur þessara bekkja svöruðu
viðhorfakönnunni í skólanum. Á næstu dögum fá foreldrar niðurstöður
sendar heim.
Háskólinn á Akureyri er að ljúka sinni úttekt á skólunum í Eyjum og
er niðurstaðna að vænta í apríl.
Olweusar könnunni er lokið og vonandi tekst að kynna niðurstöður
fljótlega eftir páska.
Í dag fimmtudaginn 24.febrúar fór eitt bréfið enn heim til foreldra
og nú frá Rannsóknum og greiningu. Þessi könnun er árleg og kannar
m.a. líðan og hagi ungmenna á Íslandi.
HS.24. 02 2005
Unglingastig- Danskir dagar
04.02.2005 - Eva
Nú
er komið að þemadögum sem að þessu sinni verða danskir dagar.
Nemendur eru búnir að velja sig í 7 hópa sem eru Eftirfarandi:
Íþróttahópur, skreytingahópur, videóhópur, tónlistarhópur,
listahópur, leiklistarhópur og dönsk matargerðarlist. Höfum við
fengið til liðs við okkur nokkra sérfræðinga á sínu sviði úr
bæjarfélaginu sem verða okkur til halds og trausts og gæða starfið
nýjum víddum. Þetta eru þeir Högni Hilmisson sem er með
tónlistarhópinn, Andrés Sigmundsson bakari en hann hjálpar til við
að töfra fram danska rétti sem við gerum góð skil á dönsku kaffihúsi
niðri í unglingarými. Þórður Svansson listamaður, en hann er með
listahópnum. Jóhann Guðmundsson, frá féló en hann er með
videóhópinn. Frábært að fá alla þessa aðila inn í skólann.
Prufa
|
 
|